Próf

Það er greinilegt að það er að koma miðannarmat. Það eru allir í prófum þessa daga eða stórum verkefnum.

Annars er tíminn ótrúlega fljótur að líða þessi önn verður búin áður en maður veit af. Þá er bara eftir ein önn í skóla áður maður fer í stafsþjálfun. Það verður ljúft að klára þetta nám en þá er spurningin á maður að halda áfram. Fara jafnvel í hjúkrun í Háskólanum á Akureyri. Ég er mikið búin að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fara þangað eða eitthvert út á land. Flutti frá Grundarfirði í fyrra, bjó þar í rúm 2 ár. Þangað myndi ég svosum ekki fara aftur. Þar var ágætt en ekki til lengri tíma þó Patti vilji flytja þangað aftur honum fannst mjög gott að búa þar. En mér leið alltaf vel á Akureyri þegar ég bjó þar. Spurning að prófa það aftur. Svo ólst ég upp í Bolungarvík þannig að það er spurning að prófa að fara vestur, kannski Súðavík maður veit ekki. En fyrst klára sjúkraliðanámið svo kemur eitthvað skemmtilegt upp í hendurnar á manni.

Kær kveðja Steina


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband